Valur vængjum þöndum..

Sveinar og meyjar í Val byrja tímabilið vel og enduðu uppi sem siguvegarar á þeim mótum sem þau tóku þátt í síðastliðna vikuna.

Stelpurnar tóku þátt í Errea mótinu í safamýri þar sem þær lögðu HK, Stjörnuna og Fram í úrslitaleik 21-20, sætur sigur þar á ferð þar sem Hrafnhildur var markahæst með sex mörk.

Strákarnir okkar fóru svo norður yfir heiðar og tóku þátt í Opna norðlenska þar sem þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið.

Þar mættu þeir ÍR, HK og Akureyri og unnu þeir alla sína leiki nokkuð örugglega, Valur 30 - ÍR 25, Valur 31- Akureyri 22, Valur 29 - HK 27 og vörðu þar með titilinn síðan í fyrra.

Flottur árangur hjá karla og kvennaliði okkar og vonum að þetta verði það sem koma skal á tímabilinu.