Getraunaleikur Vals og 66°NORÐUR

Leikurinn er kjörin vettvangur fyrir fjölskyldur, vini, liðsfélaga, afa og ömmur pabba og mömmur til að hittast yfir rjúkandi kaffibolla og meðlæti á besta stað í heimi, spjalla og taka þátt í skemmtilegum leik sem að allir geta tekið þátt í.

Þetta er einfaldur leikur sem að krefst engar "sérþekkingar" á fótbolta eða skyggnigáfu. Leiknar eru 2. umferðir haust og vorleikur og kostar þáttaka aðeins 2.500 kr á mann sem að kemur til baka í formi Dögurðar og veglegrar úrslitahátíðar.

Eins og á síðasta ári veitir 66°NORÐUR vegleg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í báðum deildum og er heildarverðmæti vinninga um 300 þúsund og því ljóst að það er til mikils að vinna.

Við hvetjum alla til að mæta og kynna sér þennan skemmtilega leik n.k laugardag á milli 10-13.

 Við skorum sérstaklega á eftirtalda til að taka þátt:

Leikmenn og þjálfara allra meistarflokka félagsins, Valkyrjur, Fálka og fulltrúaráð.