Uppskeruhátíð yngri flokka í knattspyrnu

Um næstu helgi verður haldin uppskeruhátíð knd. Vals, eða laugardaginn 15.september.  Veislan hefst kl.14.00 og áætlað að hún standi til u.þ.b. kl.16.00.  Gaman væri ef sem flestir iðkendur myndu mæta, frá 7.flokki til 3.flokks. 

Afhent verða verðlaun til þeirra sem skarað hafa framúr á liðnu keppnistímabili og tímabilið gert upp!

Óskað er eftir því að iðkendur mæti með veitingar sem settar verða á sameiginlegt hlaðborð.  Valur býður svo öllum upp á kaffi eða safa.

 

Vonumst til þess að sjá alla,

Með Valskveðju