Valur Reykjavíkurmeistari í handbolta kvenna

Í gær fór fram í Vodafonehöllinni úrslitaleikurinn í Reykjavíkurmóti kvenna í handbolta. Liðin sem áttust við hafa undanfarin ár marga hildina háð en það voru Valur og Fram sem léku til úrslita. Leikurinn endaði 21-17 fyrir Val eftir aðstaðan í hálfleik var 11-8 og Valsstúlkur því Reykjavíkurmeistarar 2012.

Markahæstar hjá Val voru Þorgerður Anna Atladóttir með 7 mörk og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir með 6 en hjá Fram var Stella Sigurðardóttir markahæst með 5 mörk og Elísabet Gunnarsdóttir skoraði 4.