Æfingahópur leikmanna - fæddar 1998

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt æfingahóp leikmanna sem fæddir eru árið 1998.

Hópurinn kemur saman á æfingar helgina 15.-16. september og er þetta liður í undirbúningi fyrir úrslitakeppni EMU17 kvenna sem fram fer á Íslandi í júní 2015. 

Fimm leikmenn hafa verið valdir frá Val, Hildur Karítas Gunnarsdóttir, Krístin Ýr Jónsdóttir, Snædís Logadóttir, Lóa Yona Zoe Fency og Kristjana Þórdís Jónsdóttir.

Við óskum leikmönnunum til hamingju og góðs gengis um helgina.