Íþróttaskóli barnanna byrjar á laugardaginn 22.sept

Næstkomandi laugardag, 22.september kl.09.40, byrjar íþróttaskóli barnanna aftur eftir sumarfrí.  Við minnum á að skráning er í fullum gangi og enn er pláss fyrir unga og áhugasama orkubolta!!!  Skólinn er fyrir unga sprelligosa fædda 2007-2009.

Nýjir skólastjórar hafa verið ráðnir, Ragnar Vignir, íþróttafræðingur og Sigrún Brynjólfsdóttir, grunnskólakennari!  Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar um skólann og fyrirkomulag tímanna hjá þeim.  Netfangið er rvignir@gmail.com eða í síma 697-9745. 

Þeim til aðstoðar verða leikmenn meistaraflokks kvenna í handbolta, en þeim er ýmislegt til lista lagt og verður eflaust mikið fjör í íþróttaskólanum í vetur !

 

Líf og fjör og áfram Valur !