Gunnar Rafn lætur af störfum

Knattspyrnufélagið Valur og  Gunnar Rafn Borgþórsson hafa komist að samkomulagi um að Gunnar Rafn láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Samkomulag þetta er gert í bróðerni og skilja báðir aðilar í góðu.

Gunnar Rafn hefur verið þjálfari meistaraflokks kvenna  síðan 2010 og vann liðið m.a. bikarkeppni KSÍ á síðasta ári undir hans stjórn. Gunnari Rafni eru þökkuð vel unninn störf og Knattspyrnufélagið Valur óskar Gunnari velfarnaðar nýjum stað og þakkar honum fyrir hans framlag og störf fyrir félagið.