Valur vann meistarakeppni HSÍ

Í kvöld áttust við í árlegum leik í Meistarakeppni HSÍ Valur og ÍBV. Leikurinn var jafn framan af og skiptust liðin á forystu í fyrri hálfleik og var ÍBV yfir 14-15 er gengið var til búningklefa. Valsstúlkur komu gríðarlega grimmar til leiks í seinni hálfleik og snéru leiknum sér í vil. Lokatölur voru 29-19 fyrir Val sem er því sigurvegari í Meistarakeppni HSÍ í ár.