U19 karla og kvenna

Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, og Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19, kvenna hafa valið leikmenn til úrtaksæfinga nú í október. 

Æfingar U19 kvenna er liður í undirbúningi fyrir undankeppni EM. Eftirtaldir Valsarar hafa verið valdar í hópinn: Berglind Rós Ágústsdóttir, Elín Metta Jensen, Hildur Antonsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir og Telma H. Þrastardóttir.

Einnig hefur Indriði Áki Þorláksson verið valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U19 liðs karla.

Við Valsmenn óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og óskum þeim að sjálfsögðu góðs gengis.