Valur - FH N1 deild karla - Fyrsti heimaleikur

Á morgun fimmtudag kl.19:30 er fyrsti heimaleikur okkar í N1 deildinni í ár. Það eru FH-ingar sem koma í heimsókn til okkar og ljóst að um hörkuleik verður að ræða. Við Valsmenn lutu í lægra haldi fyrir HK í fyrstu umferð á meðan FH gerði jafntefli fyrir norðann. VIð hvetjum alla til að mæta og styðja drengina.


Í vetur ætla vaskir Valsarar að standa við grillið og grilla sannkallaða gæðaborgara á heimeikjunum okkar í handbolta. Tilvalið fyrir fjölskylduna að borða saman að Hlíðarenda og njóta í leiðinni fyrsta flokks handboltaskemmtunar. Verði ykkur að góðu!

Ársmiðar á bestu skemmtun ársins!

Sala ársmiða í handboltanum er hafin. Tryggðu þá miða á alla heimaleiki kvenna- og karlaliðs Vals í N1 deildinni í vetur.
Þetta verða yfir fjöritíu leikir og ársmiðahöfum er alla jafna boðið í súpu, kaffi og brauð í hálfleik. Ársmiðinn kostar aðeins 15.900 kr. sem er sama verð og á síðasta tímabili.
Þetta er því frábært tilboð sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.