Valur - Grótta N1 deild kvenna

Á morgun laugardag kl.13:30 eigast við hér á Hlíðarenda Valur og Grótta í N1 deild kvenna. Valstúlkur hafa farið vel af stað og unnið báða leiki sína til þessa gegn Fylki og Haukum. Þetta er fyrsti heimaleikurinn í N1 deildinni í vetur og hvetjum við alla Valsara til að fjölmenna og styðja stelpurnar.