Valur - Snæfell í Dominos-deild kvenna

Í dag miðvikudag hefst Domins-deildin og eigum við heimaleik gegn Snæfelli kl.19:15. Valsstúlkur rétt misstu af sæti í úrslitakeppninni í vor en mæta grimmar til leiks í ár og ætla sér stóra hluti.

Mótherji okkar í fyrsta heimaleik vetrarins er Snæfell sem hefur farið vel af stað. Snæfell er búið að vinna Lengjubikarinn og einnig meistarar meistaranna. Það er því ljóst að um hörkuleik verður að ræða og hvetjum við alla Valsara til að fjölmenna og styðja stelpurnar.