Risapottur í getraununum

 

Ágætu Valsarar

 

Á laugardaginn verður risapottur á Enska seðlinum í getraunum og verður vinningur fyrir 13 rétta um 170 milljónir.

 

Nú er um að gera að reima á sig takkaskóna og rifja upp gamla takta og tippa á Enska seðilinn.

 

Okkur þætti gaman að sjá þig að Hlíðarenda á laugardagsmorgni  milli 10.00 og 13.00 en þangað mætir góður hópur skemmtilegra Valsara og allir velkomnir.

Við bjóðum þér upp á kaffi og með´i og skemmtilegt spjall um heima og geima.

 

Ef þú átt ekki möguleika á að kíkja í kaffi þá bendum við á næsta sölustað eða á netið  1X2.is.

 

Muna bara að merkja við getraunanúmer Vals sem er 101 og þá rennur hluti af upphæðinni til Vals.

 

Getraunanefndin.