Kristján Guðmundsson lætur af störfum.

Knattspyrnufélagið Valur og Kristján Guðmundsson hafa komist að samkomulagi um að Kristján láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu, báðir aðilar leituðu leiða til að halda samstarfinu áfram en án árangurs.

Kristján hefur verið þjálfari meistaraflokks undanfarin tvö ár en lætur nú af störfum. Knattspyrnufélagið Valur þakkar Kristjáni fyrir hans störf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

Kristján Guðmundsson "Þakka öllum sem ég starfaði með hjá félaginu fyrir samstarfið og eftirminnilegan tíma. Ég óska leikmönnum og samstarfsfólki velfarnaðar í framtíðinni"