Valur - Fram í N1 deild karla

Á fimmtudag kl.20:00 eigast við í N1 deild karla Valur og Fram. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðna verið gríðarlega spennandi og skemmtilegir. Bæði lið unni sína leiki í síðustu umferð og ljóst að um hörkuleik verður að ræða.

Við hvetjum alla Valsara til að fjölmenna á leikinn og styðja drengina. Sem fyrr verður boðið upp á gómsæta hamborgara þannig að við hvetjum fók til að mæta snemma.