Ingólfur Sigurðsson kominn heim

Í dag skrifaði Ingólfur Sigurðsson undir samning hjá Knattspyrnufélaginu Val. Ingólfur er uppalinn Valsari en var nú síðast á á mála hjá danska liðinu Lyngby. Það eru gleðifréttir fyrir alla Valsara að Ingólfur sé kominn aftur í okkar raðir og í anda stefnu félagsins að endurheimta Valsmenn sem hafa öðlast reynslu hjá öðrum liðum.

"Mér leist vel á þær skýru hugmyndir sem stjórnarmenn Vals hafa um félagið og framtíðina, ég er mjög glaður að fá að taka þátt í þessu verkefni og hlakka til sumarsins og samstarfsins með nýjum þjálfara" Ingólfur Sigurðsson