Sigurður Egill Lárusson til liðs við Val

Sigurður Egill Lárusson, knattspyrnumaður úr Víking gekk til liðs við Valsmenn í dag og skrifaði undir tveggja ára samning. Hann er 20 ára gamall vinstri fóta leikmaður sem getur spilað margar stöður á vellinum. Hann var í lykilhlutverki hjá Víkingum í sumar og skoraði 9 mörk á tímabilinu.

Þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki 83 leiki í deild og bikar með meistaraflokki Víkings. Sigurður Egill hefur leikið 17 leiki með yngri landsliðum Íslands og var valin efnilegasti leikmaður 1. deildar í hófi hjá Fótbolta.net. Sigurður Egill á góðar tengingar í Val en hann er bróðir Dóru Maríu Lárusdóttur leikmanns í meistaraflokki kvenna.

"Ég er  mjög ánægður að vera kominn til Vals. Þetta er stór og flottur klúbbur með mikla hefð, topp aðstæður og allt til alls. Eftir að hafa talað við stjórnarmenn og Magnús Gylfa var ég sannfærður um að þetta væri rétt skref. Ég er uppalinn í Víkinni og langar mig að þakka Víkingum fyrir góðan tíma og óska þeim alls hins besta í framtíðinni. Það eru spennandi tímar framundan hjá Val og ég hlakka til  að byrja að æfa með nýjum liðsfélögum" Sigurður Egill Lárusson.