Atli Hilmarsson í þjálfarateymi Vals

Í dag skrifaði Atli Hilmarsson undir samning við handknattleiksdeild Vals. Atli mun verða Stefáni Arnarssyni til aðstoðar hjá meistarflokki kvenna í handbolta og er það mikill hvalreki fyrir félagið að njóta krafta og þekkingar Atla.