Rúnar Már valinn í A-landsliðið

Rúnar Már Sigurjónsson hefur verið kallaður inn í landsliðshóp Íslands sem leikur gegn Sviss á Laugardalsvelli á morgun. Rúnar er nýliði í landsliðshópnum en hann hefur leikið þrjá leiki með U21 landsliðinu og fimm leiki með U19. Þetta er frábærar fréttir og við Valsmenn virkilega stoltir af Rúnari sem átti mjög gott sumar tímabil með Valsliðinu. Í hópnum eru fleiri Valsarar eða alls 6 talsins. Ásamt Rúnari Má eru Haraldur Björnsson, Ari Freyr Skúlason, Bjarni Ólafur Eiríksson, Birkir Már og Pálmi Rafn sem einnig var kallaður inn í hópinn núna.