Þrjár úr Val í æfingahóp U16 í fótbolta

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U16 kvenna valdi á dögunum æfingahóp sem kemur sama til æfinga dagana 22. - 24. febrúar.

Í hópnum eru þrjár stelpur í Val, þær Arna Karitas Eiríksdóttir, Guðrún Hekla Traustadóttir og Kolbrún Arna Káradóttir.

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum. 

May be an image of 3 people and people standing