Valsstúlkur í Evrópukeppni

Nú í morgunsárið héldu Valsstúlkur í handboltanum til Spánar þar sem þær eru að taka þátt í Evrópukeppni. Það var fríður og frískur hópur sem hittist að Hlíðarenda snemma í morgun og hélt áleiðis til Keflavíkur. Mótherjar okkar eru Valencia frá Spáni og verða báðir leikirnir leiknir erlendis. Hægt er að fylgjast með fréttum bæði hér á valur.is og einnig á heimasíðu Valencia www.rtvv.es