3 leikmenn boðaðir á úrtaksæfingar U17 landsliðs karla

Enn og aftur sjáum við hversu öflugt yngriflokka starf er í gangi á Hlíðarenda. Sindri Scheving, Darri Sigþórsson og Gunnar Sigurðsson hafa allir verið boðaðir á úrtaksæfingar hjá U17 ára liði Íslands í knattspyrnu helgina. Sindri hefur reyndar boðað forföll þar sem hann er á leið til æfinga hjá AGF í Danmörku og mun æfa og spila með U16 ára liði þeirra um helgina.

Við óskum þeim alls hins besta og höfum fulla trú á að drengirnir muni sýna sínar bestu hliðar um helgina.

Áfram Valur