Valur - Breiðablik í körfunni í kvöld
Í kvöld kl 20:00 fer fram
fyrsti heimaleikur hjá m.fl. karla í 1. deildinni í körfunni.
Strákarnir unnu Reyni Sandgerði í fyrstu umferð en búast má
við hörkuleik í kvöld þegar Breiðablik kíkir í heimsókn. Liðunum er
báðum spáð fínu gengi í vetur og því mikilvægt fyrir okkar menn að
ná sigri.
Liðið hefur litið mjög vel út í leikjum undanfarið, unnu nokkur úrvalsdeildarlið á undirbúningstímabilinu og stóðu vel í Þór Þorl. í Lengjubikarnum fyrr í vikunni.
Miðaverð er 1000kr., einnig verður hægt að kaupa árskort á 5000kr. og gildir það á alla heimaleiki vetrarins, bæði í karla- og kvennaflokki.