Rúnar Már framlengir við Val

Í dag skrifaði Rúnar Már Sigurjónsson undir þriggja ára samning við Knattspyrnufélagið Val. Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir alla Valsmenn enda Rúnar verið einn af okkar bestu leikmönnum og var m.a. valinn í A-landslið karla á dögunum.

"Ég er mjög ánægður með þetta enda hefur mér liðið mjög vel í Val. Ég kom fyrir þremur árum til félagsins og hef bætt mig jafnt og þétt sem leikmaður og tekið miklum framförum. Það eru spennandi tímar framundan og ég vil taka þátt í því. Hugurinn stefnir auðvitað út og að spila erlendis en ef það gengur ekki eftir vil ég vera áfram á Hlíðarenda og spila með Val, þess vegna er ég búinn að framlengja samning minn við félagið" Rúnar Már Sigurjónsson.