Frábær sigur í dag í Evrópukeppninni

Eins og fram hefur komið hér á valur.is eru stelpurnar okkar komnar til Spánar þar sem þær eru að taka þátt í Evrópukepninni. Þær léku fyrri leik sinn í dag gegn Valencia og unnu frábærann 5 marka sigur 22-27.

Síðari leikurinn, sem er heimaleikur Vals, fer fram á morgun kl.16.

Mörk Valskvenna:

Þorgerður 8

Karólína 6

Anna Úrsúla 4

Rebekka 3

Hrafnhildur 2

Ragnhildur 1

Íris Ásta og Aðalheiður 1 mark

Guðný Jenný varði 14 skot og 1 víti

Sigríður varði 8 skot