Valsstúlkur áfram í Evrópukeppninni
Stelpurnar okkar í meistaraflokki Vals eru komnar áfram í EHF
kepninni eftir glæsilega sigra á Valencia. Seinni leikur liðanna
var minna spennandi en sá fyrri og endaði með 12 marka sigri okkar
37-25 og samanlagt 64-47 en báðir leikirnir fóru fram
ytra.
Það er því ljóst að lið Vals er komið áfram í 3.umferð og mun mæta
firnasterku liði HC Zalau frá Rúmeníu í næstu umferð.