Þú getur breytt heiminum
Þú getur breytt heiminum
Kæri fótboltaunnandi,
Í dag ætlar þú að hjálpa mér að breyta
heiminum...
Ég heiti Siggi Raggi og þjálfa A-landslið kvenna í
knattspyrnu.
Ég held stundum fyrirlestra um hvað þarf til að ná árangri og
hugarfar sigurvegarans og í upphafi þeirra segi ég oft að "það
fyrsta sem maður þarf til að ná árangri er að eiga sér
draum".
Fimmtudaginn 25. október klukkan 18.30 á Laugardalsvelli munu
18 landsliðskonur Íslands sjá æskudrauma sína um að komast í
lokakeppni stórmóts rætast eða verða að engu.
Ísland spilar þá við Úkraínu úrslitaleik um að komast í
lokakeppni Evrópumóts kvennalandsliða.
Nú ætla ég að hugsa eins og sigurvegari og biðja þig um greiða sem
breytir heiminum...
Heimurinn sem þú ætlar að hjálpa mér að breyta er í huga
þessara 18 stúlkna sem leika knattspyrnu fyrir íslenska
kvennalandsliðið og dreymir um að komast í lokakeppni. Það eru 18
stelpur sem spila alltaf með hjartanu og fórna sér fyrir íslensku
þjóðina. Þær hafa alist upp við að stelpur í fótbolta séu ekki jafn
merkilegar og strákar. Það hefur meðal annars endurspeglast í því
að mun færri koma að styðja þær heldur en strákana
okkar.
Ég ætla því að biðja þig um að kaupa miða á landsleikinn og
mæta og styðja stelpurnar á þessum A-landsleik Íslands og Úkraínu
sem fer fram á morgun (fimmtudaginn 25.okt) kl 18:30 á
Laugardalsvelli. Miðinn kostar bara 1.000
krónur.
Ef allir segja já eins og þú verður pottþétt
uppselt!
Ég hef þjálfað kvennalandsliðið í 6 ár. Öll árin hefur mig
dreymt um að stelpurnar fengju að upplifa það að spila fyrir framan
fullan Laugardalsvöll en völlurinn tekur 10.000 manns í
sæti.
Ég á sjálfur litla stelpu sem er að alast upp við það að
íþróttir stúlkna fá ekki sömu athygli, umfjöllun og fjármagn og
karlaíþróttir. Hver segir að heimurinn okkar þurfi að vera
svoleiðis? Við erum föst í viðhorfum sem gamlar hefðir hafa mótað
en það er hægt að breyta heiminum. Ég og þú getum það
saman!
Venjulega koma á milli 3.000 og 4.000 manns á landsleikina
okkar en mest hafa komið 6.000 manns á völlinn. En ég vil fá 10.000
manns! Með því að það verður uppselt á kvennalandsleikinn breytum
við heiminum. Ekki bara hjá þeim 18 stelpum sem klæðast
landsliðstreyjunni í leiknum. Heldur í huga allra lítilla stúlkna
sem æfa íþróttir á Íslandi. Stelpurnar eru nefnilega jafn
merkilegar og strákarnir. Innst inni vitum við að það er rétt. Ég
ætla að taka þátt í að breyta heiminum og ég vona að þú gerir það
líka.
Ég treysti á að þú kaupir miða og allir sem þú þekkir mæti á
völlinn með þér! Takk fyrir að hjálpa mér að breyta
heiminum!
Sjáumst á vellinum.
Áfram Ísland!
Siggi Raggi
A-landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu
p.s. Landsleikurinn á morgun er úrslitaleikur um að komast í
lokakeppni Evrópumóts kvennalandsliða sem fer fram í Svíþjóð á
næsta ári.
Ef þú vilt breyta heiminum deildu þá þessum pistli út um allt.
Sendu hann til allra sem þú þekkir