Skráning í íþróttaskóla Vals hafin

Skráning á haustönn í íþróttaskóla Vals opnaði í dag, fimmtudaginn 17. ágúst. Fyrsti tími haustannar er laugardaginn 26. ágúst. Minnum á að námskeiðið fyllist hratt og því mikilvægt að ganga frá skráningu sem fyrst. Skráning fer fram á skráningarsíðu félagsins  sportabler.com/shop/valur/ithrottaskoli  


Fyrir hverja er íþróttaskólinn?

Íþróttaskólinn er hugsaður fyrir leikskólabörn sem fædd eru 2018-2022 (eða frá 18 mánaða - 5 ára), en markmið hans er að kynna fyrir börnunum hinar ýmsu íþróttagreinar og leiki. Í skólanum læra börn að leika sér saman, leika með foreldrum auk þess að fylgja fyrirmælum kennara og vinna í hópum. 

 

Skólinn verður starfræktur á laugardagsmorgnum í Valsheimilinu að Hlíðarenda

  •  Börn fædd 2021-2022 (f.  1. jan - 1. maí):   Eiga tíma frá kl. 9:00-9:40
  •  Börn fædd 2018-2020:   Eiga tíma frá 9:45-10:25

Stjórnandi íþróttaskólans er Tanja Geirmundsdóttir en hún hefur starfað við skólan um árabil og verður veturinn fullur af fjöri og skemmtun fyrir krakkana.  

Minnum á að mikilvægt er að skrá börnin sem fyrst í skólann til þess að ná örugglega plássi.  Það er gert á skráningasíðu félagsins: www.sportabler.com/shop/valur

Foreldrar, forráðamenn og aðrir sem fylgja börnum á æfinguna eru hvattir til að taka virkan þátt og aðstoða börnin í leik og hreyfingu. Mikilvægt er að mæta í þægilegum fötum og gott að vera berfætt til að ná sem bestu gripi á gólfinu.

 

Dagskrá íþróttaskólans haust 2023

- 26. ágúst

- 2. september

- 9. september

- 16. september

- 23. september *

- 30. september *

 

 

- 7. október

- 14. október

- 21. október

- 28. október

- 4. nóvember

 

 

 

 

 

*Tímarnir 23. og 30. september verða í Gamla Salnum að Hlíðarenda