Landsliðsæfingar U16 og U17 kvenna

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna boðaði fyrir nokkru leikmenn á landsliðsæfingar U16 og U17 kvenna.

Að vanda eigum við hjá Val nokkra fulltrúa og að þessu sinni voru Lísbet Sigurðardóttir og Katla Rún Arnórsdóttir valdar í U17 ára hópinn. Í U16 ára hópnum eigum við 5 fulltrúa en það eru, Málfríður Anna Eiríksdóttir, Nína Kolbrún Gylfadóttir, Selma Dögg Björgvinsdóttir, Sigrún Björk Sigurðardóttir og Þorgerður Einarsdóttir. 

Við óskum þeim góðs gengis að vanda.