Hlaupahópurinn

Frétt af hlaupahópnum.

Valur skokk fór í vel heppnaða hlaupaferð til Amsterdam. Hlaupið fór fram sunnudaginn 21. október og tóku 12 þátt í heilu maraþoni og 2 í hálfu. Þar af voru þrjú að fara í sitt fyrsta maraþon og kláruðu þau öll hlaupið á innan við 4 klst. sem telst mjög góður árangur. Framundan er síðan vetrardagskráin sem er heldur rólegri en yfir sumartímann. Æft er þrisvar í vikur á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:30 og laugardögum kl 9:30. Allir áhugasamir eru velkomnir á æfingar. 


Kveðjur,
Valur skokk