Fjalar Þorgeirsson gengur til liðs við Val

Fjalar Þorgeirsson hefur gengið til liðs við Val. Fjalar sem gerir þriggja ára samning við Val er einn allra besti markmaður á Íslandi í dag og kemur með mikla reynslu inn í leikmannahóp Vals. Hann kemur til Vals frá KR en hefur einnig leikið með Þrótti, Fram og Fylki. Fjalar hefur leikið 241 leik í deild og bikar og á eina fimmtán landsleiki að baki með landsliðum Íslands.

"Þegar sá möguleiki opnaðist að Valur hefði áhuga og síðan eftir fund með Magga Gylfa - Var aldrei spurning um að ganga til liðs við Val. Ekki skemmir það heldur að ég á mjög góðar tengingar inn í félagið, en Málfríður konan mín hefur  alla tíð spilað fyrir Val." Fjalar Þorgeirsson.