Þrjár Valsstelpur í æfingahópi U20

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U19 kvenna valdi á dögunum æfingarhóp sem tekur þátt í undirbúning U20 kvenna fyrir umspilsleik liðsins gegn Austurríki um laust sæti á HM í Kólumbíu 2023.

25 leikmenn koma saman dagana 17.-19. nóvember. Endanlegur hópur verður valin í framhaldinu og kemur saman til æfinga 25.-26. nóvember, og í aðdraganda ferðar dagana 27 nóv -1. des.

Í hópnum eru þrír leikmenn Vals þær Fanney Inga Birkisdóttir, Ísabella Sara Tryggvadóttir og Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir.

Liðið heldur til Barcelona 2. desember, leikurinn gegn Austurríki fer fram 4. desember í Salou og er áætluð heimkoma sunnudaginn 5. desember. Haft verður samband við þjálfara leikmannanna varðandi æfingar í aðdraganda leiksins.

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis í komandi verkefnum með landsliðinu.