Kolbeinn Kárason framlengir hjá Val

Í dag skrifaði Kolbeinn Kárason undir nýjan 3 ára samning við Val. Kolbeinn er uppalinn Valsari og lék vel með okkur í sumar í Pepsídeildinni. Kolbeinn hefur bætt sig jafnt og þétt á undanförnum árum og var m.a. í æfingahóp í U21. Miklar vonir eru bundnar við Kolbein í framtíðinni og verður spennandi að fylgjast með honum á næstu árum.