Arnar Sveinn Geirsson kominn heim

Í dag skrifaði Arnar Sveinn Geirsson undir 2 ára samning við Knattspyrnufélagið Val.  Arnar Sveinn sem er uppalinn Valsari er því kominn heim aftur en hann lék með Víking Ólafsvík í sumar.

"Það er virkilega ánægjulegt að vera kominn aftur heim til uppeldifélagsins. Mér líst mjög vel á þá átt og stefnu sem félagið er að fara í og tel að það séu spennandi tímar framundan. Það er hugur í mér að standa mig fyrir klúbbinn og hlakka ég til að byrja." Arnar Sveinn Geirsson.