Dragan Kazic ráðinn aðstoðarþjálfari

Dragan Kazic hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Magnúsar Gylfasonar hjá Val. Þeir störfuðu saman hjá ÍBV og þekkja því vel til hvors annars. Dragan hefur mikla reynslu í þjálfun og hefur verið hér á landi undanfarin ár. Hann mun auk þess að aðstoða Magnús sjá um aðstoð hjá 2.flokki karla og sjá um afreksakademíu, séræfingar og þrek.