Evrópuleikir um helgina Valur - H.C. Zalau

Kvennalið Vals í handbolta tekur þátt í Evrópukeppni þetta árið og er komið í 3.umferð EHF keppninnar eftir glæsilega sigra á liði Valencia á Spáni.

Leikið verður hérna á Hlíðarenda um helgina gegn firnasterku liði H.C.Zalau frá Rúmeníu sem fór alla leið í úrslit á síðasta ári. Fyrri leikurinn er á föstudagskvöld kl.19:30 og síðari leikurinn á laugardag kl. 18:30. Við hvetjum að sjálfsögðu alla Valsara og unnendur handboltans til að fjölmenna og styðja stelpurnar.