Valur - FH í N1 deild kvenna á þriðjudag

Á þriðjudag kl.19:30 eigast við Valur og FH í N1 deild kvenna. Valsstúlkur eru ennþá ósigraðar og FH liðið er á góðri siglingu í deildinni þannig að það má búast við hörkuleik. Hvetjum alla til að mæta og styðja stelpurnar.