U-17 og U-19 ára landslið Íslands í knattspyrnu

Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari U17 kvenna og Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari U19 kvenna hafa valið leikmenn til landsliðsæfinga helgina 10.-11. nóvember næstkomandi.  

Þorgerður Einarsdóttir, Sigrún Björk Sigurðardóttir, Nína Kolbrún Gylfadóttir, Selma Dögg Björgvinsdóttir og Málfríður Anna Eiríksdóttir hafa verið valdar í U17 ára hóp og Katla Rún Arnórsdóttir var valin í U19 ára hóp. Við óskum þeim að sjálfsögðu góðs gengis.

Þess má einnig geta að um nýliðna helgi tóku Andri Viktorsson, Darri Sigþórsson, Sindri Scheving, Gunnar Sigurðsson og Marteinn Högni Elíasson þátt í úrtaksæfingum hjá U17 og U19 ára landsliðum karla í knattspyrnu.