Ísold og Ágústa í úrtakshóp U16 og Matthías hjá U15

Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U16 ára kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum sem fara fram í knattspyrnuhúsinu Miðgarði í Garðabæ dagana 8. - 10. janúar næstkomandi.

Í hópnum eru tveir Valsarar þær Ísold Hallfríðar Þórisdóttir og Ágústa María Valtýrsdóttir.

Þá var Matthías Kjeld valinn í úrtakshóp U15 ára drengja sem kemur saman 10. - 12. janúar á sama stað. 

Við óskum krökkunum góðs gengis á æfingunum og til hamingju með valið.