Úrtaksæfingar U17 og U19 í knattspyrnu karla

KSÍ hefur boðað nokkra leikmenn Vals á úrtaksæfingar hjá U17 og U19 ára landsliðum Íslands í knattspyrnu karla helgina 17. og 18.nóvember.

Þeir Sindri Scheving, Darri Sigþórsson og Gunnar Sigurðsson hafa allir verið boðaðir til æfinga hjá U17 en Indriði Áki Þorláksson og Marteinn Högni Elíasson voru boðaðir á æfingar með U19 ára liðinu.

Sindri Scheving varð hins vegar að afboða sig þar sem hann heldur til Englands í dag og mun æfa með Norwich út vikuna. Einnig er stefnt á að hann muni spila einn leik með unglingaliði félagsins gegn unglingaliði Arsenal. 

Við óskum drengjunum að sjálfsögðu öllum góðs gengis hvort sem þeir verða á Ísland eða á Englandi.

 

Áfram Valur