Risapottur í getraununum

Ágætu Valsarar

 

Á laugardaginn 24.nóvember verður risapottur á Enska seðlinum í getraunum og verður vinningur fyrir 13 rétta um 200 milljónir.

 

Okkur þætti gaman að sjá þig að Hlíðarenda á laugardagsmorgni  milli 11.00 og 13.00 en þangað mætir góður hópur skemmtilegra Valsara og allir velkomnir.

Við bjóðum þér upp á kaffi og með´í og skemmtilegt spjall um heima og geima.

 

Ef þú átt ekki möguleika á að kíkja í kaffi þá bendum við á næsta sölustað eða á netið  1X2.is.

 

Muna bara að merkja við getraunanúmer Vals sem er 101 og þá rennur hluti af upphæðinni sem tippað er fyrir til Vals.

 

Getraunanefndin.