FH - Valur í N1 deild karla

Fimmtudaginn 22.nóvember kl.19:30 eigast við í Kaplakrika FH og Valur í N1 deild karla. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðina verið hin besta skemmtun og klárt að okkar drengir ætla sér tvö stig í Firðinum. Hvetjum alla Valsara til að mæta og styðja drengina.