Indriði Áki Þorláksson framlengir

Í dag skrifaði Indriði Áki Þorláksson undir nýjan 3. ára samning við Knattspyrnufélagið Val. Indriði kom sterkur til leiks í síðustu leikjum sumarsins og skoraði m.a. 4 mörk. Miklar vonir eru bundnar við Indriða á næstu árum og verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni. Þess má geta að þegar er komin áhugi erlendis frá en Indriði fór m.a. og æfði með Liverpool á dögunum.