Katrín Gylfadóttir framlengir

Miðjumaðurinn skæði Katrín Gylfadóttir skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Val.

Katrín hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 51 leik fyrir mfl Vals auk þess að eiga að baki fjölda landsleikja fyrir yngri landslið Íslands.

Það er spennandi tímabil framundan hjá stelpunum og sannarlega góðar fréttir fyrir félagið að vera búin að tryggja sér starfskrafta þessarar frábæru knattspyrnukonu til næstu ára.