Magnús Már Lúðvíksson í Val

Magnús Már Lúðvíksson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Knattspyrnufélagið Val. Magnús Már kemur til okkar frá KR en hann þekkir þó ágætlega til á Hlíðarenda enda lék hann hér um árabil. Magnús er fjölhæfur leikmaður sem býr yfir mikilli reynslu og mun án efa styrkja lið okkar í komandi baráttu enda leikið vel í Pepsídeild karla undanfarin ár.