Málfríður Erna skrifar undir hjá Val

Málfríður Erna Sigurðardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val. Fríða er uppalin Valsari og hefur alla tíð spilað með Val og unnið fjölda titla á sínum ferli.

Málfríður var í fæðingarorlofi á síðasta tímabili en kemur nú tvíefld til leiks og mun leika með Val næstu tvö árin. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir alla Valsara enda Fríða verið ein af bestu leikmönnum meistaraflokks undanfarin ár.