Skráning og greiðsla æfingagjalda 2013

Þá hefur verið opnað fyrir skráningu og greiðslur á æfingar hjá yngriflokkum Vals fyrir vor 2013. Gjaldskráin fyrir 2013 verður óbreytt frá árinu 2012 og hvetjum við alla foreldra til að skrá börnin sem allra fyrst í janúar. Það hefur verið tekin sú ákvörðun að þeir iðkendur sem ekki hafa verið skráðir í sinn flokk fyrir 4.febrúar munu ekki geta æft fyrr en gengið hefur verið frá skráningu.

Hægt er að skrá og greiða æfingagjöld með því að fara inn á valur.is og finna þar hnappinn "skráning iðkenda" einnig er hægt að hringja í síma 414-8005 á milli 12:00 og 16:00. Hægt er að dreyfa greiðslu fyrir vorönn og þarf bara að haka við þann möguleika á síðunni. 

Frístundastyrkur fyrir 2013 verður klár til ráðstöfunnar frá og með 1.janúar 2013.