Íþróttamaður Vals á gamlársdag

Í hádeginu á gamlársdag fer fram venju samkvæmt val á íþróttamanni Vals. Þetta er í 20 skipti sem að valið fer fram og hvetjum við Valsara til að fjölmenna á Hlíðarenda og fá sér kaffi, kakó og kökubita. Þetta er orðin árviss hefð og gaman hversu margir mæta á ári hverju. Síðan er tilvaið að fá sér göngutúr í Fjósið og versla flugelda fyrir kvöldið.