Ingólfur og Sigurður Egill valdir í U21

Eyjólfur Sverrisson hefur valið 30 manna hóp til úrtaksæfinga um helgina. Í hópnum eru frá okkur þeir Ingólfur Sigurðsson og Sigurður Egill Lárusson. Næsta verkefni U21 ára liðsins er æfingaleikur gegn Wales sem fram fer ytra þann 6. febrúar. Við óskum drengjunum góðs gengis.