Nicola Dokic til liðs við handknattleiksdeild Vals

Handknattleiksdeild Vals hefur samið við nýjan erlendan leikmann út leiktíðina. Nicola Dokic sem kemur frá liði Rauðu Stjörnunnar í Serbíu og er 29 ára miðjumaður/v.skytta og er væntanlegur um helgina til landsins. Gaman verður að fylgjast með þessum kraftmikla leikmanni á fjölunum á Hlíðarenda sem á eflaust eftir að styrkja hópinn mikið.